Björn Unnar Valsson leiðir hjólatúrinn
Björn Unnar Valsson leiðir hjólatúrinn

Um þennan viðburð

Tími
10:00 - 12:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir

Hjólatúr | Stefnumót við ljóðskáld í efri byggðum

Laugardagur 26. mars 2022

Breiðholtið hefur sett mark sitt á skáld sem þar hafa alist upp, og eins hreyft við öðrum sem hafa einungis staldrað við. Við hjólum á milli snertipunkta við holtið og lesum upp ljóð.

Hjólatúrinn hefst við Borgarbókasafnið Gerðubergi í Breiðholti, við inngang hússins að sunnanverðu. Þátttakendur eru beðnir að mæta vel útbúnir, í hlýjum fatnaði og á hjólum sem henta veðri og færð hverju sinni. Vinsamlegast mætið tímanlega. Ferðin tekur um eina og hálfa klukkustund og svo vermum við kalda fingur á kaffihúsi í lok ferðar.

Hjólastjórar: Árni Davíðsson formaður Landssamtaka hjólreiðamanna og Björn Unnar Valsson, bókmenntafræðingur og vefstjóri á Borgarbókasafninu.

Boðið er upp á hjólatúr með bókmenntalegu ívafi einn laugardagsmorgun í mánuði frá janúar til apríl. Um er að ræða nýtt samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Hjólafærni á Íslandi og Landssamtaka hjólareiðamanna þar sem boðið er upp á skemmtilega blöndu af útivist, hreyfingu og andlegri næringu. Verkefnið hlaut styrk frá Miðborgarsjóði Reykjavíkurborgar.
Hjólatúrarnir eru ókeypis og öll velkomin að taka þátt.

Skráning fer fram hér fyrir neðan.

Næstu hjólatúrar:

Stefnumót á strigaskóm
Hjólatúr fyrir alla fjölskylduna
Hjólað frá Borgarbókasafninu Sólheimum
Lau. 09.04.22 kl. 10:00-12:00

Stefnumót við skáldin í hverfinu
Hjólatúr um Hlíðarnar og nágrenni
Hjólum frá Borgarbókasafninu Kringlunni
Lau. 14.05.22 kl. 10:00-12:00

 

Hjólafærni á Íslandi

Landssamtök hjólreiðamanna