Um þennan viðburð

Tími
13:30 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Börn
Tungumál
Enska
Bókmenntir
Börn
Fræðsla

Gáfuðu dýrin – áhugaverðar staðreyndir um dýr og skemmtileg föndurstund

Sunnudagur 22. mars 2026

Hvaða dýr getur fundið lykt neðansjávar? Hvaða dýr hefur lengstu eyrun miðað við stærð? Hefurðu einhvern tíma velt því fyrir þér hvers vegna augu katta lýsa í myrkri? Höfundurinn Lena Anlauf hefur tekið saman mest spennandi staðreyndir og sögur um nef, eyru og augu úr dýraríkinu, á meðan teiknarinn Vitali Konstantinov kynnir okkur fyrir einstökum dýrum í glæsilegum myndum.

Þetta safn sérstakra tegunda víðsvegar að úr heiminum fagnar fjölbreytileika náttúrunnar. Það hefur verið þýtt á átta tungumál og hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal „White Raven“ frá Alþjóðlega ungmennabókasafninu, auk viðurkenninga á borð við „Besta þýska bókahönnunin“ og Þýsku barnabókaverðlaunin.

Lena og Vitali kynna bókaflokkinn sinn um gáfuðu dýrin með gagnvirkum upplestri fyrir alla fjölskylduna og öll skilningarvit. Eftir lesturinn geta allir sem vilja teiknað sitt eigið ofur-eyru-augu-nef dýr!

Lena Anlauf er þýskur höfundur og bókahönnuður en bækur hennar hafa unnið til fjölda verðlauna og verið þýddar á átta tungumál. Hún dvelur í Reykjavík í mars 2026 sem gestarithöfundur á vegum Goethe-Institut. Eftir nám í bókfræði og heimspeki rannsakar hún nú sögulegar myndabækur samhliða ritstörfum og starfar sem útgáfustjóri barna- og unglingabókmennta hjá þýsku bókaforlaginu „kunstanstifter“.

Vitali Konstantinov er þýskur höfundur, myndskreytir og myndasöguhöfundur. Hann nam byggingarlist, grafíska hönnun, málun og listasögu og hefur skrifað og myndskreytt bækur í meira en 20 ár, sem hafa verið gefnar út í 40 löndum. Verk hans hafa hlotið titilinn „Besta þýska bókahönnunin“ og hann vann „Þýsku barnabókaverðlaunin 2025“ fyrir myndskreytingar sínar í „Snilldaraugu – forvitnilegt dýrasafn“. Vitali kynnir einnig bækur sínar um allan heim á gagnvirkum upplestrum og vinnustofum.

Athugið; Viðburðurinn fer fram á ensku

Viðburður á Facebook.

Viðburðurinn er í samstarfi við Reykjavík bókmenntaborg UNESCO en Lena Anlauf og Vitali Konstantinov dvelja um þessar mundir í Gröndalshúsi á vegum Reykjavíkur bókmenntaborgar UNESCO.  Gröndalshúsi er menningarhús í miðborg Reykjavíkur kennt við skáldið Benedikt Gröndal (1826-1907) sem þar bjó. Í Gröndalshúsi er vinnuaðstaða fyrir orðlistafólk og gestaíbúð fyrir erlenda rithöfunda, þýðendur og fræðimenn.

Nánari upplýsingar um viðburðinn veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri & staðgengill safnstjóra
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is | 411 6145

 

Rými fyrir höfunda

Þessi viðburður er hluti af Rými fyrir höfunda á söfnunum okkar. Rithöfundar og skáld sem eru að gefa út bók og hafa áhuga á að standa fyrir kynningu á nýju verki og/eða eldri verkum sínum geta pantað rými á Borgarbókasafninu sér að kostnaðarlausu. Höfundum er frjálst að nýta rýmið eins og þeim hentar, til dæmis fyrir upplestur (jafnvel í samráði við aðra höfunda), útgáfuhóf og kynningar. Frekari upplýsingar má finna hér, Rými fyrir höfunda á söfnunum okkar.

Nánari upplýsingar veitir: 
Þorgerður Agla Magnúsdóttir
verkefnastjóri | bókmenntir og lestrarhvatning
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is