Ljóðakaffi | Freyðandi ljóð  - ungskáld
Ljóðakaffi | Freyðandi ljóð - ungskáld

Um þennan viðburð

Tími
17:30 - 18:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Bókmenntir
Kaffistundir

FRESTAÐ Ljóðakaffi | Freyðandi ljóð

Fimmtudagur 25. mars 2021

Á Borgarbókasafninu í Kringlunni verður boðið upp á freyðandi ljóð og léttar veitingar. Júlía Margrét Einarsdóttir sér um ljóðakaffið þar sem þrjú skáld í yngri kantinum flytja ljóð sín: Arndís Lóa Magnúsdóttir, Brynja Hjálmsdóttir og Dagur Hjartarson.

Arndís Lóa Magnúsdóttir er fædd 1994 en hún fékk nýræktarstyrk til að gefa út ljóðabókina Taugaboð á háspennulínu. Brynja Hjálmsdóttir, fædd 1992, hefur gefið út ljóðabókina Okfruman og birt ljóð í tímaritum og Dagur Hjartarson sem er fæddur 1986 hefur meðal annars gefið út ljóðabækurnar: Fjölskyldulíf á jörðinni, Því miður og Heilaskurðaðgerðin. Júlía Margrét Einarsdóttir er fædd 1987 og hefur gefið út skáldsöguna Drottningin á Júpíter og ljóðabókina Jarðarberjatungl, auk annarra skrifa.

Hámarksfjöldi þátttakenda: 30 manns

Skráning nauðsynleg: Skráningarform neðst á síðu.

Viðburðurinn á Facebook.

Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.

 

Nánari upplýsingar veita:

Guttormur Þorsteinsson, bókavörður
guttormur.thorsteinsson@reykjavikis | s. 411 6204

Júlía Margrét Einarsdóttir
juliamargret23@gmail.com | s. 820 7486

 

Bækur og annað efni