Nanna Rögnvaldar og Arndís Þórarins og myndir af bókakápum

Um þennan viðburð

Tími
16:30 - 17:30
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
Íslenska
Bókmenntir
Spjall og umræður

Bókakaffi með glæpaívafi

Mánudagur 20. október 2025

Arndís Þórarinsdóttir og Nanna Rögnvaldardóttir koma í heimsókn í bókasafnið í Árbæ og ræða saman um glæpasögurnar Morð og messufall og Mín er hefndin. Nanna sendi nýlega frá sér glæpasöguna Mín er hefndin en hún er framhald Þegar sannleikurinn sefur sem kom út í fyrra. Arndís Þórarinsdóttir sendi fyrr á árinu út sína fyrstu glæpasögu, Morð og messufall. Bókina skrifaði Arndís í félagi við Huldu Sigrúnu Bjarnadóttur en þetta er þriðja bókin sem þær skrifa saman. Sagan gerist í nútímanum og fjallar um rannsókn á morði í kirkju í Grafarvoginu ólíkt bók Nönnu sem flytur okkur aftur til morðmáls á 18. öld.

Nanna og Arndís gefa einnig báðar út bækur fyrir börn og ungmenni í haust og munu þær einnig ræða um hvernig er að skrifa fyrir ólíkan aldur og hvernig farið er að því að gefa út ekki bara eina heldur tvær bækur á einu ári!

Viðburðurinn er hluti af dagskránni Glæpafár á Íslandi sem haldin er í samstarfi við Hið íslenska glæpafélag, sem fagnar 25 ára afmæli í ár. 

Verkefnið Glæpafár á Íslandi er styrkt af Bókasafnasjóði.

Öll velkomin og aðgangur er ókeypis.


 

Viðburður á Facebook
 

Nánari upplýsingar veitir: 

Þorgerður Agla Magnúsdóttir, verkefnastjóri bókmennta og lestrarhvatningar
thorgerdur.agla.magnusdottir@reykjavik.is I 411 6149 

Bækur og annað efni