Um þennan viðburð
Bókakaffi | Grúskarar
Skráning er á allflesta viðburði Borgarbókasafnsins og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.
Skráningarform fyrir þennan viðburð má finna neðar á síðunni.
• Staðsetning viðburðar: Salurinn Berg, á efri hæð
• Hámarksfjöldi gesta: 50 manns
• Kaffihúsið er opið
Sjá hér upplýsingar um sóttvarnarráðstafanir safnsins.
Rithöfundarnir Kristín Svava Tómasdóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og Ófeigur Sigurðsson eiga það sameiginlegt að hafa grúskað í fornum skjölum í leit að innblæstri. Á þessu bókakaffi koma þau og segja frá afrakstrinum. Öll gáfu þau út bækur fyrir jólin sem voru afrakstur heimsókna á einhvers konar skjalasöfn. Kristín Svava skrifaði ljóðabókina Hetjusögur upp úr riti um ljósmæður, Þóra Karítas byggir skáldsögu sína Blóðberg að einhverju leyti á sögu Þórdísar Halldórsdóttur, fyrstu konunnar sem var tekin af lífi í Drekkingarhyl og Ófeigur Sigurðsson leitaði innblásturs í gömlum skjölum þegar hann skrifaði Váboða, safn smásagna.
En hvað er það við fortíðina sem er svona heillandi? Og hvernig er best að vinna upp úr fornum sannleika og setja í samhengi við hinn óskiljanlega samtíma? Er samhengið þegar til staðar eða tilbúningur höfundanna?
Frekari upplýsingar veitir:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir, verkefnastjóri
halla.thorlaug.oskarsdottir@reykjavik.is