
Um þennan viðburð
Bókakaffi | Gleymdar konur sögunnar
Skráning er á þennan viðburð og er sóttvarnarreglum fylgt í hvívetna.
Sjá skráningarform neðst á síðunni.
Sjá nánar HÉR…
Hvaða kvenna samtímans mun framtíðin minnast? Munu sögubækur framtíðarinnar vera öðruvísi en þær sem við lesum í dag, þegar kemur að afrekum kvenna?
Hvað gerir fólk minnisvert? Hvers vegna er afreka karla fremur minnst en kvenna? Hver skrifar söguna og hvernig getum við tekið ábyrgð í ferlinu?
Við bjóðum ykkur á Bókakaffi þar sem við veltum meðal annars fyrir okkur þessum spurningum ásamt þeim Erlu Huldu Halldórsdóttur, Þóru Hjörleifsdóttur og Nínu Björk Jónsdóttur.
Við hefjum kvöldið á að heiðra minningu fimm gleymra kvenna með 5 stuttmyndir úr Brazen-seríunni, eftir Pénélope Bagieu í leikstjórn Mai Nguyen og Charlotte Cambon, áður en umræður hefjast.
Þessi viðburður er hluti af dagskrá sem unnin var með Franska sendiráðinu og Alliance Française í Reykjavík með stuðningi frá UNESCO Bókmenntaborginni Reykjavík.
Nánari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel, Sérfræðingur - Fjölmenningarmál