Um þennan viðburð

Tími
14:30 - 15:30
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Tungumál
íslenska
Bókmenntir
Börn

Bókajól | Barnadagskrá í Úlfarsárdal

Laugardagur 30. nóvember 2024

Bókajól á öllum söfnunum!

Taktu frí frá áreiti og neyslu og njóttu aðventunnar í faðmi nýútkominna bóka! Borgarbókasafnið býður upp á aðventuupplestra á öllum söfnum sínum, með mismunandi þema. Þrír höfundar lesa upp á hverjum stað og boðið er upp á kakó eða súpu, eftir því hvort lesið er upp í hádeginu eða eftirmiðdaginn.  Hér er heildardagskrá viðburðaraðarinnar.

 

 

Í Úlfarsárdal verður boðið upp á Barnadagskrá

Barnvæn og skemmtileg dagskrá í Úlfarsárdal þar sem þrír rithöfundar lesa upp úr nýjum barnabókum. Viðburðurinn fer fram í Jólaþorpinu sem sprettur upp þennan dag milli 14:00 og 18:00, á torginu á milli Fram og Miðdals (Borgarbókasafn og Dalslaug).

Boðið verður upp á jólavarning og heitt súkkulaði. Fjölskyldur og vinir geta tekið þátt í fjölskylduratleik og svo koma jólasveinar!

 

Upplestrardagskrá:
Þórarinn Eldjárn - Hlutaveikin / Dótarímur
Rán Flygenring - Tjörnin
Kristín Helga Gunnarsdóttir - Fíasól í logandi vandræðum

 

Um bækurnar:

Hlutaveikin: Jólin nálgast. Freysteinn Guðgeirsson er ungur drengur sem verður æ spenntari með hverjum degi sem líður. Biðin er við það að verða óbærileg. Á endanum koma þau samt og Freysteinn getur loksins, loksins farið að opna alla jólapakkana. En þá kemur dálítið í ljós sem reynist erfitt viðureignar þó allt fari vel að lokum. Myndir gerði Sigrún Eldjárn.

Dótarímur:  Nýr rímnaflokkur handa börnum á öllum aldri. Rímurnar eru tíu talsins, hver og ein snýst um tiltekið dót eða leikföng. Þar gengur á ýmsu og flest reynist dótið frekar misheppnað. Allt þar til kemur að níundu rímu sem fjallar um bækur. Í beinu framhaldi kemur tíunda og síðasta ríman en þar birtist loks besta dót sem við eigum.

Tjörnin: Þegar Fífa og Spói rekast á ókunna dæld í miðjum garðinum sínum breytist allt. Hélukeppir og gljáfætlur, óstýrilát selshamsstytta, dularfullt draugabarn og bíræfnir nágrannar eru bara brot af þeim undrum sem koma upp úr kafinu þegar vinirnir munda skóflurnar. Hyldjúp og töfrandi saga um forvitni og framhleypni, stjórn og stjórnleysi, en ekki síst um samband okkar við eigin tegund og allar hinar sem við deilum nærumhverfinu með. Bók fyrir náttúrubörn á öllum aldri.

Fíasól í logandi vandræðum: Fíasól er í logandi vandræðum! Hjálparsveit Fíusólar stendur í stórræðum. Það er eldgos í Vindavík og Alla Malla og Stebbi flýja í Grænalund. Bjössi byssó flytur í götuna. Fíasól tínir upp skítalummur og syngur í Skólóvisjón og þau Ingólfur Gaukur rífast miklu meira en venjulega. „Hann hefur meira að segja sagt við hana að hún sé barnaleg. Og nokkrum sinnum! Og eins og það sé eitthvað slæmt að vera barnalegur?… Að vera barnalegur er að vera klár, sniðugur, hugrakkur og duglegur!“

 

Ekki láta þig vanta!

Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn!

Viðburður á Facebook

Bækur og annað efni