Um þennan viðburð

Tími
14:00 - 15:00
Verð
Frítt
Hópur
Fullorðnir
Tungumál
íslenska
Bókmenntir

Bókajól | Ævisögur í Árbænum

Sunnudagur 8. desember 2024

Bókajól á öllum söfnunum!

Taktu frí frá áreiti og neyslu og njóttu aðventunnar í faðmi nýútkominna bóka! Borgarbókasafnið býður upp á aðventuupplestra á öllum söfnum sínum, með mismunandi þema. Þrír höfundar lesa upp á hverjum stað og boðið er upp á kakó eða súpu, eftir því hvort lesið er upp í hádeginu eða eftirmiðdaginn.  Hér er heildardagskrá viðburðaraðarinnar.

 

 

Í Árbæ er þemað Ævisögur

 Dagskrá: 
 Kristín Svava Tómasdóttir - Duna
 Bragi Ólafsson - Innanríkið - Alexíus
 Auður Styrkársdóttir - Kona á buxum

 

Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn!
Boðið verður upp á heitt kakó.

 

Um bækurnar:

Duna: Guðný Halldórsdóttir, Duna, er afkastamesta kvikmyndagerðarkona þjóðarinnar. Eftir hana liggja ástsælar gamanmyndir eins og Stella í orlofi en líka dramatískar myndir líkt og Veðramót auk fjölda heimildarmynda og sjónvarpsþátta. Hér hefur Duna sjálf orðið og fer yfir viðburðaríkan feril í sprenghlægilegu en heiðarlegu uppgjöri.

Innanríkið - Alexíus: Faðir höfundar vaknar eina nótt við að ókunnugur maður stendur í svefnherbergisdyrunum, og aldarfjórðungi síðar rifjar sonurinn upp atvikið. Í framhaldi fer hann á stefnulaust flakk um fortíð og nútíð, frá Reykjavík upp á Mýrar og út í heim. Hér sýnir Bragi Ólafsson á sér nýja hlið; hann beinir athyglinni að því sem ekki er endilega skáldskapur.

Kona á buxum: Heimildaskáldsaga um Þuríði formann á Stokkseyri sem varð strax á barnsaldri dugandi sjómaður og gekk uppkomin á buxum. Hún fór ótroðnar slóðir og varð fræg fyrir að koma óvænt upp um illræmda glæpamenn í Flóanum. Höfundur sem á sér langa sögu í heimi fræða hefur kafað djúpt í heimildir um Þuríði sem um tíma gekk undir nafninu Þormóður.


Ekki láta þig vanta!

Viðburður á Facebook

Nánari upplýsingar:
Halla Þórlaug Óskarsdóttir
verkefnastjóri bókmennta

Bækur og annað efni