100 ára afmæli Borgarbókasafnsins

Um þennan viðburð

Tími
12:00 - 17:00
Verð
Frítt
Hópur
Fyrir öll
Bókmenntir
Börn
Föndur

100 ára afmæli | Borgarbókasafnið Kringlunni

Sunnudagur 16. apríl 2023

Hjartanlega velkomin á Borgarbókasafnið Kringlunni í tilefni 100 ára afmælisins. Í boði er skemmtileg dagskrá fyrir unga sem aldna; bókmenntaganga, sögustund, föndur, ratleikur og kaffi, djús og bollakaka í boði fyrir öll sem vilja njóta dagsins með okkur.

Í boði allan daginn frá kl. 12:00-17:00:

  • Sýning á afmæliskveðjum frá leikskólabörnum
  • Taktu sjálfu sjálft/sjálf/sjálfur
  • Föndurfjör
  • Ratleikur – leitaðu að ýmsum sögupersónum
    Hlustaðu á leiklesin leikrit af vínyl

 

Kl. 14:00 – 15:30
Afmælisbókmenntaganga um nágrenni Kringlusafns í fylgd rithöfundanna Kristínar Steinsdóttur og Dags Hjartarsonar.
Guttormur Þorsteinsson leiðir gönguna fyrir hönd safnsins.

Kl. 14:00
Sögustund með Evu Rún Þorgeirsdóttur
Hún hefur m.a. skrifað bækurnar um Stúf og þríleikinn um Lukku og hugmyndavélina.

Kl. 14:00-16:00
Afmæliskaffi

Smellið hér til að skoða afmælisdagskrána í öllum söfnum okkar helgina 15. og 16. apríl.

 

Nánari upplýsingar veitir:
Guðríður Sigurbjörnsdóttir, deildarstjóri
gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is | 411 6200