Kvennaverkfall á Borgarbókasafninu
Föstudaginn 24. október fer fram Kvennaverkfall um land allt, sem markar 50 ára afmæli fyrsta kvennaverkfallsins, Kvennafrísins 1975. Konur og kvár eru hvött til að leggja niður störf, taka þátt skipulagðri dagskrá og sýna þannig samstöðu með kröfum verkfallsins.
Borgarbókasafnið lætur ekki sitt eftir liggja og tekur þátt af fullum krafti, sem mun hafa áhrif á opnunartíma allra starfstöðva safnsins þennan dag. Opnunartími Borgarbókasafnsins föstudaginn 24. október verður eins og hér segir:
Lokað
Borgarbókasafnið Árbæ
Borgarbókasafnið Klébergi
Borgarbókasafnið Spönginni
Borgarbókasafnið Úlfarsárdal
Lokað - umframopnun utan hefðbundins þjónustutíma
Borgarbókasafnið Kringlunni - Lokað á hefðbundnum afgreiðslutíma.
Umframopnun+ utan hefðbundins þjónustutíma og án starfsfólks frá kl. 08:00 - 11:00 og kl. 18:30 - 22:00
Borgarbókasafnið Sólheimum - Lokað á hefðbundnum afgreiðslutíma.
Umframopnun+ utan hefðbundins þjónustutíma og án starfsfólks frá kl. 08:00 - 11:00 og kl. 18:00 - 22:00
Stytt opnun án þjónustu
Borgarbókasafnið Gerðubergi - Opið án þjónustu frá kl. 08:00 - 12:00
Fríbúðin Gerðubergi - Opið frá kl. 08:00 til 13:30
Stytt opnun með þjónustu
Borgarbókasafnið Grófinni. Afgreiðslutími frá kl. 11:00 - 15:00. Strákarnir standa vaktina.