Bókin heim | Heimsending á bókum
Borgarbókasafnið býður upp á heimsendingarþjónustuna Bókin heim. Þjónustan er ætluð öldruðum og öðrum sem vegna veikinda eða annarra ástæðna, til dæmis félagslegra, eiga ekki heimangengt, og hefur verið í boði allt frá 1974. Með Bókinni heim er hægt að fá heimsent lesefni, bækur og tímarit, eða tónlist á geisladiskum. Þetta er persónuleg þjónusta þannig að hver lánþegi fær sinn starfsmann til að þjóna sér og fær aðstoð hans við að finna efni til að lesa eða hlusta á. Sendingarnar eru á átta vikna fresti.
Bókin heim er ókeypis fyrir þau sem eiga kort hjá bókasafninu - en 67 ára og eldri og öryrkjar fá bókasafnskorti án endurgjalds
Bókasöfnin eru öllum opin hvort sem er til að sækja lesefni eða annan safnkost til að taka með sér heim, eða bara til að setjast niður, kíkja í bækur eða blöð, spjalla við náungann eða bara gera ekki neitt. Á safninu eru líka ýmiss konar viðburðir í boði; upplestrar, tónlist, leshringir, bókakaffi og prjónaklúbbar svo fátt eitt sé nefnt.
Vilt þú eða þekkir þú einhvern sem vill nýta sér þessa þjónustu?
Þú getur skráð þig hér neðar á síðunni. Einnig má hringja í síma 411 6100 eða senda okkur tölvupóst á borgarbokasafn@borgarbokasafn.is. Starfsmaður Borgarbókasafnsins hefur samband þegar umsóknin hefur verið samþykkt.
Gögnin eru lánuð út í 8 vikur í senn og allar sendingar eru keyrðar út á sama tíma, sem þýðir að nokkur tími getur liðið frá skráningu til fyrstu sendingar.
Lestu viðtal við ánægðan notanda.