BORGARBÓKASAFNIÐ

Bijal Shah, bókameðferðarfræðingur, rithöfundur og stofnandi BookTherapy mun halda vinnustofur og fyrirlestur um bókameðferð á Borgarbókasafninu Gerðubergi og Grófinni dagana 26. til 28. október næstkomandi. Vinnustofurnar ná yfir heilan dag og eru opnar öllum sem áhuga hafa á viðfangsefninu, bókasafnsfólki sem og t.d. þeim er starfa á sviðum menntunar og geðræktar (Athugið að skráning er nauðsynleg). En hvernig gerðist það að bankakonan varð bókameðferðarfræðingur? Við fengum Bijal til að svara nokkrum spurningum sem brunnu á okkur um hvernig hún uppgötvaði bókameðferðina og hvað í henni felst.
Hvað er bókameðferð (e. bibliotherapy)?
Bijal Shah útskýrir að bókameðferð sé í sinni einföldustu mynd markviss notkun bókmennta til að styðja við bata, sjálfsskilning og persónulegan þroska. Í bókameðferð er notast við t.d. skáldskap, fræðibækur, endurminningar, ljóð, goðsögur, ritgerðir eða önnur frásagnarform í því augnamiði. Bókameðferð er meira en að mæla með hughreystandi bók, meðferðargildið felst í sambandinu sem myndast milli lesanda og texta, ásamt þeirri ígrundun eða samtali sem fylgir lestrinum.
"Bók getur virkað sem spegill sem gerir okkur kleift að koma auga á eitthvað í okkur sjálfum, hún getur verið gluggi okkar inn í reynslu annarrar manneskju eða öruggt rými ímyndunaraflsins þar sem við getum tekist á við erfiðar tilfinningar og velt fyrir okkur mögulegum leiðum fram á við."
Bijal segir henna nálgun á bókameðferð byggjast á þremur meginferlum: samsömun, tilfinningalegri útrás og innsæi. Textinn verður hvati sem gerir lesandanum kleift að uppgötva eigin merkingu og skilning.
En hvernig byrjaði þetta allt sama hjá Bijal, hvað varð til þess að hún ákvað að leggja fyrir sig bókameðferð?
"Áhugi minn kviknaði þegar ég var í diplómanámi í sálaraflsfræði (e. psychodynamic councelling) og jafnframt sjálf í sálrænni meðferð á sama tíma", segir Bijal sem á þeim tíma starfaði í fjárfestingarbanka.
"Í hvert sinn sem ég var að fást við persónuleg viðfangsefni í minni sálrænu meðferð fann ég að ég leitaði ósjálfrátt í bækur til að skilja viðfangsefnin betur."
Hún segir meðferðaraðilann hennar hafa oft vísað henni á skáldsögur, grískar goðsögur eða aðrar sögur til að varpa ljósi á ákveðnar hugmyndir sem þau voru að ræða. "Slíkar tilvísanir náðu stundum til mín á þann hátt sem óhlutbundnar útskýringar gerðu ekki. Þær gáfu tilfinningum lögun og tungumál sem áður hafði verið erfitt að koma í orð."
Hún segist því hafa orðið forvitin um hvers vegna þetta virkaði og fór að kynna sér sögu og sálfræði meðferðarmiðaðs lesturs. Sú forvitni varð að lokum til þess að Bijal yfirgaf bankastarfsemina og stofnaði Book Therapy.
En hvernig fer bókameðferð fram?
Bijal lýsir hvernig bókameðferð gengur fyrir sig: "Í einstaklingsviðtali byrja ég á því að kynnast manneskjunni: hvað er að gerast í lífi hennar, hvað hún vill skoða, hver er lestrarsaga hennar og áhugasvið og hversu mikið svigrúm hún hefur, bæði tilfinningalega og í daglegu lífi, til að lesa. Út frá þessum upplýsingum er útbúinn bókalisti fremur en að ávísa einni ákveðinni bók. Þannig hefur lesandinn val og svigrúm til að velja þá bók sem höfðar mest til hans eða hann finnur sterkasta tengingu við," segir Bijal.
Lesandinn er síðan hvattur til að taka eftir textabrotum, persónum, tilfinningum eða köflum sem hann telur táknræna og mikilvæga í verkinu. Bókmenntaleg dagbókarskrif geta hjálpað til við að skrá hugrenninga og upplifun af lestrinum. Í samtölum eru þessar vangaveltur um lesturinn skoðaðar og hvað þær kunna að segja um reynslu viðkomandi.
"Í hópi er oft unnið með smásögu, ljóð eða textabrot og notaðar vandlega mótaðar spurningar til að skapa rými fyrir ígrundun og samtal. Þátttakendur eiga ávallt að ráða því sjálfir hversu miklu þeir vilja deila. Bókameðferðarhópur á að bjóða þátttakendum inn í samtal sem hver og einn tekur ákvörðun um að taka þátt í og má aldrei verða íþyngjandi," bætir Bijal við.
Er bókameðferð viðurkennd sem meðferðar- og fræðsluaðferð? Hefur verið sýnt fram á árangur hennar?
Bijal segir svo vera en svarið þarfnist þó ákveðinnar útskýringar.
"Notkun frásagna í meðferðarskyni á sér aldagamlar rætur," segir Bijal og bætir við að hugtakið „bibliotherapy“ hafi orðið til snemma á tuttugustu öld. Í dag sé bókameðferð notuð víða um heim í leshópum á bókasöfnum, í skólum, af félagsráðgjöfum, í heilbrigðisþjónustu og í samfélags- og umönnunarstarfi.
Bijal segir sterkustu klínísku rannsóknarniðurstöðurnar tengjast skipulögðum lestri á sjálfshjálparefni, einkum leiddum aðferðum sem byggja á hugrænni atferlismeðferð og snúa að geðrænum vanda á borð við þunglyndi og kvíða.
Hún bætir við að rannsóknir á skapandi eða tilfinningamiðaðri bókameðferð, þar sem meðal annars eru notaðar skáldsögur, ljóð og samlestur (e. Shared Reading), lofi einnig góðu, sérstaklega hvað varðar tengslamyndun, tilfinningatjáningu og velfarnað.
"Því er best að skilja bókameðferð sem breitt svið fremur en eina staðlaða meðferðaraðferð," segir Bijal. Árangurinn ráðist meðal annars af því hversu vel textinn hentar aðstæðum og móttöku lesandans, menningarlegu samhengi, aðgengi og gæðum þeirrar faglegu leiðsagnar sem veitt er.
"Bókasöfn eru sérstaklega vel í stakk búin til að bjóða upp á slíka þjónustu þar sem þau búa yfir gæðum bókakosts almenningsbókasafna, þekkingu starfsfólks, góðu aðgengi og rými þar sem öll eru velkomin og fólk getur hist og verið laust undan stimplun og fordómum sem stundum geta fylgt því að sækja klíníska þjónustu", segir Bijal.
Hver geta haft gagn af bókameðferð?
Bókameðferð getur reynst gagnleg fólki sem tekst á við sorg, kvíða, depurð, veikindi, einmanaleika, erfiðleika í samböndum, foreldrahlutverkið, breytingar á starfsferli eða önnur tímamót í lífinu. Hún getur einnig nýst fólki sem glímir ekki við tiltekinn vanda en vill efla sjálfsvitund, samkennd, orðaforða um tilfinningar eða tengsl við aðra.
Bókameðferð hentar þó ekki öllum á öllum tímum og ekki ætti að kynna hana sem staðgengil fyrir brýna læknisfræðilega eða sálfræðilega aðstoð. Í klínísku samhengi verða fagaðilar að starfa innan ramma sinnar starfsstéttar og faglegra marka.
Hvernig hefur bókameðferð nýst þér í þínu eigin lífi og starfi?
"Bókmenntir hafa hjálpað mér að skilja mína innri veröld af meiri samkennd. Bækur hafa gefið mér orð yfir reynslu sem ég gat skynjað en ekki enn útskýrt. Þær hafa veitt mér nýtt sjónarhorn á óvissutímum og minnt mig á að jafnvel okkar allra persónulegustu tilfinningar eru hluti af miklu stærri mannlegri reynslu," segir Bijal.
Hún segir að í starfi hafi bókameðferð gjörbreytt því hvernig hún vinni með fólki. Texti getur stundum skapað örugga fjarlægð. "Í fyrstu erum við að ræða persónu eða sögumann, en smám saman kann lesandinn að koma auga á eitthvað úr eigin lífi. Þannig geta erfið málefni komið upp á yfirborðið með mildum og eðlilegum hætti," segir Bijal.
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að miðla þekkingu þinni til annarra?
"Mig langaði að gera bókameðferð aðgengilegri en jafnframt stuðla að því að hún væri stunduð af yfirvegun og á siðferðilega ábyrgan máta. Bækur eru víða aðgengilegar, ekki síst á bókasöfnum, en það krefst næmni, færni og meðvitundar um mörk að velja texta sem hentar tiltekinni manneskju og leiða það ferli sem fylgir lestrinum," segir Bijal,
Hún segir að með því að miðla aðferðafræðinni geta fleiri skapað innihaldsríka lestrarupplifun í sínu samfélagi. Það stuðlar einnig að samstarfi bókasafnsfólks, kennara, fagfólks á sviði geðheilbrigðis og lesenda, hópa sem hafa margt fram að færa hver við annan.

Bijal Shah mun halda sömu vinnustofuna tvívegis dagana 26. og 27. október á Borgarbókasafninu Gerðubergi.
Vinnustofan verður hvoru tveggja fræðileg og byggð á virkri þátttöku Þátttakendur er kynntir fyrir bæði fræðilegum grunni og hagnýtri beitingu bókameðferðar (e. bibliotherapy), það er markvissri notkun bóka, frásagna og ljóða til að styðja við tilfinningalega vellíðan, ígrundun og persónulegan þroska.
"Við munum skoða sögu og grundvallarhugmyndir bókameðferðar og þau sálfræðilegu ferli sem geta gert lestur að meðferðarúrræði. Við skoðum einnig muninn á bókameðferð, hefðbundnum leshringjum, bókmenntafræðslu og hefðbundinni sálfræðimeðferð," segir Bijal.
Hún mun einnig kynna hagnýtar leiðir til að velja viðeigandi texta, hvernig leiða skal ígrundandi samtöl og aðrar aðferðir eins og dagbókarskrif, ljóðalestur og skapandi skrif.
"Ég tel mikilvægt að fólk fái sjálft að upplifa ferlið áður en maður reynir að leiða aðra í gegnum það," bætir Bijal við.
Hvernig munu vinnustofurnar nýtast þátttakendum í þeirra faglega starfi?
Hún segir að þátttakendur muni fara heim með skýrari ramma um hvernig velja megi texta og leiða ígrundandi lestur á ábyrgan máta.
Þar fá þeir tækifæri til að læra hvernig hægt er að gera meira en einfaldlega að mæla með bók og skapa þess í stað ígrundað ferli í kringum lesturinn þar sem tekið er mið af þörfum lesandans, textinn er kynntur af næmni fyrir lesandanum, spurt er opinna spurninga, dagbókarskrif er iðkuð eða skapandi kveikjur nýttar og þannig átta sig á því hvenær viðeigandi kann að vera að vísa fólki til faglærðs sérfræðings á sviði geðheilbrigðis.
Markmiðið sé ekki að gera bókasafnsfræðinga eða kennara að meðferðaraðilum. Markmiðið er að hjálpa þeim að nota bókmenntir á meðvitaðri hátt innan þess starfssviðs sem þeir sinna nú þegar. Það gæti falist í því að stofna leshóp með áherslu á vellíðan og velfarnað, setja saman þemalista bóka, styðja við umræður í kennslu með bókalistum, auðga meðferðarstarf sem er fyrir hendi eða skapa innihaldsríkari tækifæri til samtals og jafningjastuðnings.
Meginmarkmið segir Bijal vera að þátttakendur fari af vinnustofunni með sjálfstraust, hagnýt verkfæri og siðferðilegan grunn til að byrja að beita bókameðferð innan viðeigandi marka síns faglega starfs.
Vinnustofan eru opin öllum sem áhuga hafa á viðfangsefninu og er þátttaka gjaldfrjáls. Fjöldatakmörkun er á námskeiðið og eru áhugasöm hvött til að skrá. Vinnustofan fer fram á ensku. Hægt er að velja um tvær dagsetningar, annars vegar mánudaginn 26. október og hins vegar þriðjudaginn 27. október kl. 9-16. Farið er yfir sama efni báða dagana. Vinnustofurnar eru haldnar í Borgarbókasafninu Gerðubergi. Hér má finna frekari upplýsingar um vinnustofuna.
Auk vinnustofunnar heldur þú fyrirlestur fyrir almenning, hver verður áherslan þar?
"Fyrirlesturinn fyrir almenning verður kynning á lækningamætti lesturs. Ég mun fjalla um sögu bókameðferðar, útskýra hvað gerist sálfræðilega þegar bók snertir og hreyfir við okkur og deila dæmum um hvernig skáldskapur, fræðibækur og ljóð geta fylgt okkur í gegnum ólík æviskeið. Ég mun einnig kynna hagnýtar leiðir sem fólk getur notað til að hefja eigin ígrundandi lestrarvenju: hvernig velja megi bækur með ákveðinn tilgang í huga, taka eftir eigin tilfinningalegum viðbrögðum, halda bókmenntadagbók og útbúa persónulegan „lestrarseðil“. Fyrirlesturinn er jafnt fyrir ástríðufulla lesendur sem og þau sem lesa sjaldnar. Engin sérþekking er nauðsynleg."
Hvað vonast þú til að fólk taki með sér heim af fyrirlestrinum?
"Ég vona að fólk gangi út og horfi á lestur í örlítið öðru ljósi, ekki aðeins sem skemmtun, afþreyingu eða fræðslu heldur einnig sem leið til ígrundunar, tengsla og sjálfsumhyggju. Áheyrendur munu hafa fengið forskrift að einföldum vinnuramma til að nýta til taka eftir því hvað texti vekur upp innra með því og nokkrar hagnýtar hugmyndir sem hægt er að nýta sér strax. Ég vonast því fyrst og fremst eftir að fólk fari út forvitið: um bækurnar sem hafa mótað það, bækurnar sem það gæti þurft á að halda einmitt núna og samtölin sem þessar bækur gætu gert möguleg."
Fyrirlesturinn er haldinn í Borgarbókasafninu Grófinni kl. 17:00 miðvikudaginn 28. október. Frekari upplýsingar hér.
Hefur þú komið til Íslands áður? Hlakka þú til heimsóknarinnar?
"Þetta verður fyrsta heimsókn mín til Íslands og ég er gríðarlega spennt. Bókmenntamenning Íslands og sterk tengsl þjóðarinnar við frásagnarhefðina gera landið að sérstaklega merkingarbærum stað til að ræða bókameðferð. Ég hlakka ekki aðeins til að miðla eigin starfi heldur einnig til að hitta íslenskt bókasafnsfólk, kennara, lesendur og rithöfunda og læra af þeirra reynslu. Ég hef sérstakan áhuga á því hvernig bókmenntahefðir Íslands og sterk almenningsbókasafnamenning gætu mótað framtíðarþróun bókameðferðar hér á landi."