BORGARBÓKASAFNIÐ

Borgarbókasafnið fékk nýverið úthlutað styrk úr Bókasafnasjóði til verkefnisins Bækur, uppspretta aukinna lífsgæða.
Verkefnið, er samstarfsverkefni bókasafnsins og Bókmenntaskólans og miðar að því fá breska bókameðferða-sérfræðinginn Bijal Shah til landsins til að kynna fyrir fagaðilum og öðrum áhugasömum leiðir til að nýta bækur til að bæta líðan og heilsu.
Shah er höfundur bókarinnar Bibliotherapy: The Healing Power of Reading, sem hefur verið þýdd á 12 tungumál og hlotið góðar viðtökur. Hún hefur auk þess miðlað þekkingu sinni á bókameðferð víða um heim. Þetta verður í fyrsta sinn sem Shah kemur til Íslands.
Í heimsókn sinni kemur Shah til með að halda námskeið fyrir starfsfólk bókasafna, kennara og aðra áhugasama þar sem hún kennir aðferðafræði bókameðferðar og hagnýtar leiðir til að nota lestur sem verkfæri til bættrar líðan. Í framhaldi munu sérfræðingar Bókmenntaskólans bjóða upp á reglulega lestrarhópa þar sem aðferðum bókameðferðar verður beitt með það að markmiði að styðja við bætta líðan og heilsu þátttakenda.
Með verkefninu kemur starfsfólk bókasafna þannig til með að öðlast aukna þekkingu á því hvernig nýta má safnkostinn og rými bókasafna til að skapa vettvang fyrir samveru, samtal og jafningjastuðning.