BORGARBÓKASAFNIÐ

Verið velkomin á opnun útskriftarsýningar myndlistarbrautar Fjölbrautaskólans í Breiðholti fimmtudaginn 7. maí á milli kl. 14:00 - 17:00.
Nemendur sýna afrakstur lokaáfangans í myndlist. Sýningin er fjölbreytt og metnaðarfull, þar sem málverk, skúlptúrar, innsetningar, myndasögur og fleira verður til sýnis.
Diljá Richter · Elísabet Heiða Eyþórsdóttir · Greta Zogaj · Hulda Magnea Árnadóttir · Ingveldur Birna Björnsdóttir · Íris Birta Viðarsdóttir · Jakub Mikolaj Jablonski · Máni Þorvaldsson · Sigmundur Karl Kristjánsson · Sigrún Heba Arnardóttir · Wiktoria Siwek
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdóttir@reykjavik.is | 411-6170