BORGARBÓKASAFNIÐ

Á sýningunni eru textílverk sem Aðalbjörg vinnur með frjálsri heklun og mósaík hekli, þar sem litagleði og notagildi fara saman í púðum og teppum. Hluti verkanna tilheyra seríunni Dalalíf og er nafnið tileinkað bókaflokki Guðrúnar frá Lundi sem Aðalbjörg hlustaði á meðan hún heklaði. Önnur verk eru sjálfsprottin þar sem Aðalbjörg leggur af stað með ákveðna liti og hugmynd í huga, innblásið af náttúru, himninum og sólkerfinu, en verður oft að einhverju öðru í sköpunarferlinu.
Aðalbjörg Erlendsdóttir lauk námi í fata- og textílhönnun frá Colubine skolen í Kaupmannahöfn árið 1992 og hefur haldið þrjár einkasýningar auk þátttöku í fjölmörgum samsýningum. Áður lærði hún líffræði við Háskóla Íslands og skírskotun til náttúrunnar má sjá vel í verkum hennar. Aðalbjörg (gjarnan kölluð Budda) hefur starfað undir merkinu Budda-design.
Á ferlinum hefur Aðalbjörg notað fjölbreyttar aðferðir í hönnun sinni, meðal annars að mála litríkt á silki í föt og slæður, sem og landslagsmálun. Undanfarið hefur Aðalbjörg gengið í gegnum veikindi sem drógu úr getu hennar til silkimálunar og sneri sér þá að listsköpun með heklunálinni og sýnir afraksturinn í Borgarbókasafninu Árbæ.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.
Nánari upplýsingar veita:
Aðalbjörg (Budda) Erlendsdóttir
adalbjorg@budda.is
Heiðrún Gréta Viktorsdóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafni Árbæ
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavík.is