Skólaheimsóknir | Fyrir kennara
Hefur þú áhuga á að halda vinnustofu eða námskeið sem snýr að skapandi tækni?
Sendið okkur skilaboð hér fyrir neðan.
Kennaraþjálfun
Við bjóðum upp á kynningu fyrir kennara sem vilja dýpka þekkingu sína og kynna sér nýja kennslumöguleika. Heyrðu í okkur og við tökum á móti þér og sýnum þér þau forrit, tæki og tól sem eru í boði á Borgarbókasafninu.
Langar þig að halda vinnustofu eða námskeið hjá okkur?
Kennurum í tónlist og skapandi tækni er velkomið að nýta aðstöðu safnsins undir kennslu fyrir nemendur á öllum aldri.
Sendið okkur fyrirspurn og við finnum lausan tíma.
Samstarfsaðilar
- Skema í HR heldur reglulega námskeið fyrir grunnskólakennara og einstaka skólakrakka með áherslu á forritun, rafrásir og tölvunarfræði.
- Starfsþróun og kennsluráðgjöf Nýsköpunarsmiðju menntamála í Mixtúru býður upp á fræðslu, ráðgjöf og stuðning við notkun stafrænnar tækni í skóla- og frístundastarfi Reykjavíkurborgar og rekur Búnaðarbankann. Hægt er að panta fræðslu, vinnustofur og ráðgjöf á mixtura@reykjavik.is.
- FabLab Ísland býður upp á námskeið, kennsluefni og verkefnakveikjur fyrir kennara skapandi tækja ásamt að reka FabLab rými út um allt landið.
Við bendum einnig á Vísindasmiðju Háskóla Íslands sem býður upp á ókeypis skólaheimsóknir og kennarasmiðjur í skapandi tækni.
Nánari upplýsingar veitir:
Karl James Pestka, verkefnastjóri
karl.james.pestka@reykjavik.is