Smiðjur | Skapandi tækni
Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreyttar smiðjur fyrir börn og ungmenni í einni ákveðinni tækni í hvert sinn t.d. í forritun í örtölvum, barmmerkjagerð, tónlistarforritun, laga- og textagerð, saumaskap o.fl.
Skráning er nauðsynleg í smiðjurnar en ekki þarf að eiga bókasafnskort til að mæta.
Í Fiktvarpi Borgarbókasafnsins er að finna stutta kennsluefni sem tengjast skapandi tækni. Þar getur þú t.d. lært að forrita í Roblox, gera myndbönd með stop-motion eða grænskjá.
Ertu með hugmynd að smiðju?
Langar þig að læra eitthvað sem við höfum ekki ennþá boðið uppá? Sendu okkur hugmyndina þína!
Einnig er kennurum og öðrum með sérþekkingu á ákveðnu sviði skapandi greina eða tækni, t.d í tölvufikti, tónlist eða myndvinnslu, velkomið að hafa samband ef þau hafa áhuga á að halda smiðju á Borgarbókasafninu.