• Bók

Kristín Rós : meistari í nærmynd

Meðhöfundar / þýðendur / útgefendur
Friðþjófur HelgasonTeitur Jónasson
Kristín Rós hóf kornung að æfa sund með Íþróttafélagi fatlaðra í Reykjavík árið 1982 og lauk keppnisferlinum tuttugu og tveimur árum síðar. Þá hafði hún sett samtals sextíu heimsmet og níu Ólympíumet! Kristín Rós á að baki feril sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Henni hafa hlotnast margvíslegar viðurkenningar fyrir afrek sín, bæði á Íslandi og á heimsvísu. Bókin veitir innsýn í líf og hugsanagang þessarar einstöku afrekskonu sem af einurð og æðruleysi hefur náð svo glæsilegum árangri. Kristín Rós er einn merkasti íþróttamaður sem Ísland hefur alið. (Heimild: Bókatíðindi)
Gefa einkunn