Frábær og skemmtileg bók um Sæmund súpermús og fjölskyldu hans. Litla músafjölskyldan þarf að takast á við ýmsar hættur í íslenskri náttúru. Þær er margvíslegar og mýsnar þurfa að kljást við hættulega menn og dýr. Þessi skemmtilega saga er í ljóðaformi með skírskotun til álfatrúar, árstíðanna í náttúrunni og baráttu dýranna til að komast af. Bókin er í stóru broti, með litríkum teikningum úr íslenskri náttúru. (Heimild: Bókatíðindi)