Tævönsk skáldsaga hlýtur Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunin

Taiwan Travelogue eftir tævanska rithöfundinn Yáng Shuāng-zǐ í þýðingu Lin King hlýtur Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunin 2026. Þetta er í fyrsta sinn sem verk eftir tævanskan rithöfund hlýtur verðlaunin.Taiwan Travelogue gerist árið 1938 þegar Tævan var undir stjórn Japana og segir ljúfsára sögu um ástir tveggja kvenna en einnig fjallar verkið um gleymda nýlendusögu, tungumál og völd.
Höfundurinn Yáng Shuāng-zǐ hefur skrifað skáldsögur, ritgerðir, manga-bækur, sögur fyrir tölvuleiki og bókmenntagagnrýni. Hún hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir Taiwan Travelogue og hefur bókin verið þýdd á fjölda tungumála.
Hér fyrir neðan má finna þær útgáfur sem til eru af Taiwan Travelogue hjá Borgarbókasafni og Rafbókasafni auk verka sem tilnefnd voru á stuttlista Alþjóðlegu Booker-bókmenntaverðlaunanna í ár.