Sumarlestur 2026 | Lestarsprettur Gúnda geithafurs

Sumarlestur 2026

Við bjóðum börnum upp á skemmtilega lestaráskorun í sumar í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og almenningsbókasöfn um land allt.
Sumarlesturinn hefst 20. maí og verður til 20. ágúst.

Gúndi geithafur og grasleitin mikla

Komdu í næsta Borgarbókasafn og fáðu vegabréf til þess að taka þátt í ævintýrinu með Gúnda geithafri. Fyrir hverjar 15 mínútur af lestri litar þú leiðina í ævintýrakortinu innan í vegabréfinu. Þegar þú hefur náð klukkustund af lestri getur þú farið í næsta Borgarbókasafn með vegabréfið, fengið stimpil og happamiða!

Dregið verður úr happamiðum í allt sumar og fyrir uppskeruhátíðina í lok sumars. Heppnir þátttakendur fá vinning!

Teikning og hönnun: Blær Guðmundsdóttir

Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
verkefnastjóri barna- og unglingastarfs - lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411-6146