Stuttlisti bresku bókmenntaverðlauna kvenna 2026

Tilkynnt hefur verið um stuttlista bresku bókmenntaverðlauna kvenna 2026.
Bresku bókmenntaverðlaun kvenna voru stofnuð árið 1996 til að vekja athygli á skáldverkum eftir konur. Verðlaunin eru veitt ár hvert fyrir skáldsögu í fullri lengd sem gefin er út á ensku á Bretlandi. Vinningshafinn hlýtur 30.000 pund að launum og verðlaunagripinn “Bessie”.
Tilkynnt verður um vinningshafa verðlaunanna í sumarveislu í Bedford Square Gardens í London þann 11. júní næstkomandi.
Eftirtalin verk og höfundar eru á stuttlista verðlaunanna 2026:
Flashlight by Susan Choi
Dominion by Addie E. Citchens
The Correspondent by Virginia Evans
The Mercy Step by Marcia Hutchinson
Kingfisher by Rozie Kelly
Heart the Lover by Lily King
Hér má finna frekari upplýsingar um Bresku bókmenntaverðlaun kvenna.
Á meðal fyrri vinningshafa og verka eru:
The Safekeep eftir Yael van der Wouden
Brotherless Night eftir V.V. Ganeshananthan
Demon Copperhead eftir Barbara Kingsolver
The Book of Form & Emptiness eftir Ruth Ozeki
Piranesi eftir Susanna Clark
Hér fyrir neðan má finna bækur á stuttlistanum og fyrri vinningsverk sem til eru á Borgarbókasafninu og Rafbókasafninu.