Stefna og aðgerðaáætlun Borgarbókasafnsins 2025-2028
Miðpunktur mannlífs í hverfunum er yfirskrift stefnu Borgarbókasafnsins 2025-2028. Stefnan er unnin í samvinnu við starfsfólk, notendur bókasafna og hagaðila. Við vinnuna var horft til menningar- og þjónustustefnu borgarinnar og metnaðarfullar stefnur stærri bókasafna um allan heim notaðar til hliðsjónar.
Gildin okkar eru:
FAGMENNSKA | VIRÐING | MENNING | AÐGENGI
Þau endurspegla fyrir hvað við stöndum sem skipulagsheild. Þau eru starfsfólki innbástur og leiðarljós í framlínustörfum og upplýsingamiðlun. Þau eru lykilsteinar í brúarsmíð þekkingar og hugmynda fólks, starfsfólks jafnt sem notenda.
Áherslur okkar eru:
1. Leiða samtal, uppbyggingu, þróun og nýsköpun
2. Efla lestur, læsi, miðlun, tengsl og samstarf
3. Deila þekkingu, upplýsingum, rými og hlutum
4. Jafna aðstöðu, aðgengi, tækifæri og þátttöku