
Pikknikk í Grófinni með EAPN á Íslandi
Að þessu sinni voru það EAPN á Íslandi, samtök sem berjast gegn fátækt á Íslandi, sem voru gestgjafar okkar í Pikknikki í Grófinni. Þau buðu upp á nýkreistan appelsínusafa og Rice Krispies-kökur, ásamt bakkelsi og ferskum ávöxtum. Málefni sem flest spjölluðu tengdust tækifærum til að gera eitthvað skemmtilegt með börnunum sínum án þess að það kosti mikið, sérstaklega fyrir veturinn.
Lautarferðir voru eitthvað sem mörg tengdu við þegar þau bjuggu erlendis eða voru í fríi: að taka teppi og mat til að deila og sitja í almenningsgarði eða á strönd og spjalla og slaka á. Kannski ættum við að gera það oftar í innirýmum þegar veðrið er vont? Hvað er hægt að gera á kuldalegum vindadögum með börnunum? Sumir foreldrar minntust á að sig kvíði fyrir helgum þegar veðrið er slæmt, því þá væri erfitt að finna eitthvað að gera með börnunum sem væri ekki rándýrt. Flest rýmin rukka aðgangseyri og of oft endaði maður á að gera það sama oft og þá færi börnum að leiðast.
Í Grófinni leið okkur eins og á besta sumardegi, sólin skein í gegnum gluggana, viðslökuðum á, nutum samvista og sum settu upp sólgleraugu í tilefni dagsins - alveg hreint skínandi laugadagur á bókasafninu.
Finndu fleiri Lautarferðir á bókasafninu HÉR.
Nánari upplýsingar veitir:
Dögg Sigmarsdóttir
Verkefnastjóri | Borgaraleg þátttaka
dogg.sigmarsdottir@reykjavik.is