Verðlaunahafar Siljunnar 2022

Vinningshafar úr Smáraskóla í yngri flokki

Vinningshafar úr Þelamerkurskóla í eldri flokki.

 

Börn úr Smáraskóla og Þelamerkurskóla sigurvegarar Siljunnar 2022

Borgarbókasafnið í samstarfi við Barnabókasetur Íslands standa saman að myndbandasamkeppninni Siljunni. Keppt er í tveimur flokkum, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk og senda börnin inn um tveggja mínútna stiklu um barna- eða unglingabók gefna út á íslensku síðustu tvö ár. Skólabókasafn sigurvegara úr báðum flokkum fær 100.000 kr. bókaverðlaun og er því til mikils að vinna!

Í ár komu inn myndbönd allsstaðar að af landinu og voru þau fjölbreytt og skemmtileg. Það voru bæði leikin og teiknuð myndbönd. Börn, dýr og tuskuhundar léku hlutverk og þær bækur sem teknar voru fyrir voru allt frá því að vera myndabækur fyrir yngstu börnin upp í hryllingssögur fyrir stálpuð börn og unglinga. 
 

Verðlaunasæti í yngri flokki, 5.-7. bekkur

1. sæti: Kalli breytist í kjúkling  

Vinningshafar: Snædís Arna Guðmundsdóttir, Sólveig Lára Davíðsdóttir og Sunna Sigurðardóttir í Smáraskóla.

2. sæti: Þín eigin saga – Rauðhetta


Höfundar myndbands: Anita Liu Atladóttir, Bjarki Fannar Björgvinsson, Emilía Guðný Magnúsdóttir, Hrafnhildur Rán Elvarsdóttir og Ísabella Soffía Ásgeirsdóttir í Smáraskóla.

3. sæti: Hundmann


Höfundur myndbands: Aþena Katrín Þórðardóttir í Smáraskóla.

Verðlaunasæti í eldri flokki, 8.-10. bekkur

1. sæti: Fleiri hryllilega stuttar hrollvekjur


Vinningshafar: Daníel Ingi Mazul, Stefán Karl Ingvarsson, Dagur Karl Stefánsson, Jónatan Smári Guðmundsson og Ólafur Dagur Jónsson í Þelamerkurskóla.

2. sæti: Viltu vera vinur minn?


Höfundar myndbands: Juliane Liv Sörensen, Lilja Lind Torfadóttir, Elín Bára Wilkinson Jónsdóttir, Elísa Liljudóttir Daðadóttir, Jóhanna Margrét Einarsdóttir, Lív Sólrún Bastiansdóttir Stange og Tinna Dögg Jónsdóttir í Þelamerkurskóla.

3. sæti: Spæjarahundurinn


Höfundur myndbands: Flóki Dagsson, Austurbæjarskóla.