Höfundur Jóladagatalsins 2022 | Jólaævintýri Kötlu og Leós
Hér er Jólaævintýri Kötlu og Leós!
Fimmtán umsóknir bárust í samkeppni um Jóladagatal Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar 2022.
Jólaævintýri Kötlu og Leós varð fyrir valinu, en Hrafnhildur Emma Björnsdóttir (Hremma) skrifar bæði söguna og teiknar myndirnar. Sagan vakti sérstakan áhuga dómnefndar fyrir frumleika og áhugaverða persónusköpun. Persónurnar eru fjölbreyttar og lifandi og hugað er að sýnileika hinsegin fólks og einstaklinga af ólíkum uppruna án þess að gera þessi málefni að sérstöku umfjöllunarefni í frásögninni. Sögufléttan er vel hugsuð, æsispennandi og kemur sannarlega á óvart. Jólaævintýri Kötlu og Leós er nútímaleg og skemmtileg saga eftir ungan höfund sem ætti að skemmta bæði börnum og fullorðnum í aðdraganda jólanna.
Jóladagatalið verður aðgengilegt hér á heimasíðunni og og á vef Bókmenntaborgarinnar. Sagan er einnig lesin af höfundi inn í hlaðvarp Borgarbókasafnsins.
Við óskum Hremmu innilega til hamingju og hlökkum til að fylgjast með sögunni í desember!