
Tölvuaðstoð á Borgarbókasafninu í Grófinni
Vantar þig aðstoð við einföld tölvuverkefni?
Borgarbókasafnið í Grófinni býður upp á tölvuaðstoð á virkum dögum frá kl. 16– 17.
Gestir geta komið með eigin tæki, en einnig er aðgangur að tölvum og prentara á bókasafninu. Starfsmenn safnsins eru vel að sér í ýmsu en eru þó ekki sérfræðingar um tölvu- eða tæknimál. Ekki er um tölvuviðgerðir að ræða.
Við aðstoðum meðal annars við:
• Word, PDF, prentun og skönnun
• Leit á netinu, finna vefsíður og eyðublöð
• Að senda skjöl, myndir og tölvupóst
• Á mánudögum og þriðjudögum er einnig hægt að fá aðstoð við lagfæringar á stuttum texta, prófarkalestur og hjálp við uppsetningu á ferilskrá og kynningarbréfi
Tölvuaðstoðin er ókeypis og opin öllum!
Nánari upplýsingar veita:
Alexander Sigurðarson, sérfræðingur
alexander.sigurdarson@reykjavik.is
Ísak Gabríel Regal, bókavörður
isak.gabriel.regal@reykjavik.is