Tengivirkið - Young people Connect

Tengivirkið - Young People Connect

Í Tengivirkinu - Young People Connect hittist ungt fólk á aldrinum 16 – 25 ára sem hefur annað móðurmál en íslensku. Á dagskrá er fræðsla frá áhugaverðum aðilum og fjölbreytt íslenskukennsla með reynslumiklum kennara - auk þess sem Tengivirkið er góður og afslappandi vettvangur til að kynnast öðrum ungmennum með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu. 

Þátttaka er ókeypis og öllum opin, líka byrjendum í íslensku. Engin skráning og engin skuldbinding, það má mæta eins oft eða sjaldan og hver vill.

Allir viðburðir Tengivirkisins hefjast kl. 16:00 og standa til um það bil 17:30. 
Áhugasöm eru hvött til að skrá sig í facebookhóp Tengivirkisins þar sem settar eru inn nánari upplýsingar. 

Verkefnið er unnið í samstarfi við Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis en Tengivirkið er einn liður í stærra verkefni sem Þjónustumiðstöðin leiðir. Tengivirkið er hluti af þróun bókasafnsins sem opið rými, þar sem leitast er eftir því að notendur komi að dagskrárgerð og geri rýmið að sínu eigin.

Fyrir hvern er þetta verkefni?
Ungt fólk á aldrinum 16 - 25 ára sem er með annað móðurmál en íslensku (AM).

Hvenær?
Við hittumst á fimmtudögum kl. 16:00 - 17:00.

Hvar?
Á Borgarbókasafninu í Kringlunni.

Dagskrá Tengivirkisins vorið 2022

Fólk og samfélag - kynningar og umræður:
10. febrúar | Kynning frá Borgarbókasafninu og Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis
10. mars | Kynning frá Andrými - róttæku samfélagsrými í Reykjavík og New in Iceland
7. apríl | Heimsókn á Kjarvalsstaði
12. maí | Kynning frá Student Refugees Iceland og Landssamtökum íslenskra stúdenta (LÍS) 

Fjölbreytt íslenskukennsla: 
19. maí 
24. febrúar 
24. mars  
28. apríl 


Frekari upplýsingar veitir
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu
hildur.borgvinsdottir@reykjavik.is

Flokkur
UppfærtMiðvikudagur, 23. mars, 2022 11:08