Bókaverðlaun barnanna 2020 | Tilnefningar
Árlega tilnefna börn þær bækur sem þeim þykja skemmtilegastar, áhugaverðastar eða bestar að hvaða ástæðu sem er og verða Bókaverðlaun barnanna afhent nú í 19. sinn. Alls láu 128 bækur undir í kosningunni en bækurnar hafa aldrei verið fleiri en í ár. Börn af öllu landinu kusu og í ár fengu allar 128 bækurnar kosningu!
Þær fimm íslensku og fimm þýddu barnabækur sem stóðu upp úr hjá börnunum munu keppa svo áfram í kosningu Sagna – verðlaunahátíð barnanna: www.krakkaruv.is/sogur . Kosningin stendur til 15. maí.
Tilkynnt verður um úrslit í hátíðardagskrá, Sögur – verðlaunahátíð barnanna sem verður sjónvarpað á RÚV laugardaginn 6. júní.
Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Bókaverðlaun barnanna 2020 (birt í stafrófsröð):
Íslenskar barnabækur
Barist í Barcelona - Gunnar Helgason
Draumaþjófurinn - Gunnar Helgason
Kennarinn sem hvarf - Bergrún Íris Sævarsdóttir
Orri óstöðvandi: Hefnd glæponanna - Bjarni Fritzson
Þinn eigin tölvuleikur - Ævar Þór Benediktsson
Þýddar barnabækur
Dagbók Kidda klaufa - Allt á hvolfi - Jeff Kinney, þýðandi Helgi Jónsson
Handbók fyrir ofurhetjur – Fjórði hluti: Vargarnir koma - Elias Vahlund, þýðandi Ingunn Snædal
Hundmann - Dav Pilkey, þýðandi Bjarki Karlsson
Í alvöru ekki opna þessa bók - Andy Lee, þýðandi Huginn Þór Grétarsson
Kiddi Klaufi: Randver kjaftar frá: besti vinur Kidda skrifar eigin bók - Jeff Kinney, þýðandi Helgi Jónsson