Hlaðvarpið, sumarlesturinn
Hlaðvarpið, sumarlesturinn

Bókalisti- sumarlesturinn þáttur 1

Í hlaðvarpi Borgarbókasafnsins skrafar starfsfólk safnsins um sínar hjartans bækur. Hér má nálgast bókalista fyrir þættina. 

ÞÁTTUR 1

Í fyrsta þætti Sumarlestursins 2018 komum við við á Ítalíu, í aldagömlum kirkjugarði og í blokk í Vesturbænum. 

Þau Björn Unnar Valsson, Guðrún Baldvinsdóttir og Hildur Baldursdóttir ræða um eftirfarandi bækur: 

Bækur

Dagar höfnunar eftir Elenu Ferrante
Ef að vetrarnóttu ferðalangur eftir Italo Calvino
Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson 
Lincoln in the Bardo eftir George Saunders 
Blood Meridian eftir Cormac McCarthy
The Last Ringbearer eftir Kirill Eskov 
Lífsnautnin frjóa eftir Anne B. Ragde
Kapítóla eftir E.D.E.N. Southworth
Eddubækurnar eftir Jónínu Leósdóttur: Konan í blokkinni, Stúlkan sem enginn saknaði og Óvelkomni maðurinn 

The Last Ringbearer má nálgast á pdf formi hér: https://bit.ly/2Krsajz 
 

ÞÁTTUR 2

Í öðrum þætti Sumarlestursins 2018 höfum við viðkomu á anarkísku tungli, í Plymouth og á fótboltavellinum. 

Þau Guttormur Þorsteinsson, Ólöf Sverrisdóttir og Sunna Dís Másdóttir spjalla um eftirfarandi bækur: 

Ancilliary þríleikurinn eftir Ann Leckie 
The Dispossessed eftir Ursulu Le Guin
Unfinished Tales eftir Tolkien 
Litla bakaríið við Strandgötuna eftir Jenny Colgan
Slepptu mér aldrei eftir Kazuo Ishiguro
Summerhill-skólinn eftir A.S. Neill
Málavextir eftir Kate Atkinson
Call Me By Your Name eftir André Aciman
Fótboltasögur (tala saman strákar) eftir Elísabetu Jökulsdóttur

 

ÞÁTTUR 3

Í þriðja þætti Sumarlestursins 2018 eru þau Sunna Björk Þórarinsdóttir, Jón Páll Ásgeirsson og Esther Ýr Þorvaldsdóttir stödd í Englandi, N-Ameríku, Mexíkó og Frakklandi. Sunna þykist hafa fundið fyrirmyndirnar af hinum ýmsu persónum úr A Game of Thrones í sagnfræðibókum um hin svokölluðu Rósastríð, Jón Páll skoðar óáreiðanlega sögumenn í Síle og Frakklandi og Esther skoðar bækur sem seinna hafa orðið að sjónvarpsþáttum og leikritum.

13 Reasons Why / 13 ástæður eftir Jay Asher (þátturinn 13 Reasons Why frá Netflix)
Lancaster and York eftir Alison Weir
Richard III eftir Paul Murray Kendall
Saga þernunnar eftir Margaret Atwood (þátturinn The Handmaid's Tale frá Hulu) 
Svo þú villist ekki í hverfinu hérna eftir Patrick Modiano
Verndargripur eftir Roberto Bolano
Wars of the Roses eftir John Ashdown-Hill
The Wonderful Wizard of Oz eftir L. Frank Baum (Galdrakarlinn í Oz í uppsetningu Leikhópsins Lottu)

Flokkur
UppfærtMiðvikudagur, 10. júní, 2020 12:57
Materials