pillow talk booklist

Koddahjal | Bókalisti

Við höfum tekið saman nokkrar bækur sem tengjast innsetningunni Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kovačević. Innsetningin verður til sýnis á Borgarbókasafninu í Grófinni frá 12. júní. 

Koddahjal - Endurhlaða eftir Sonju Kovačević er innsetning sem gefur áhorfandanum innsýn í lif hælisleitenda og flóttamanna á Íslandi.
Framsetningin er einföld; hátalarar hafa verið settir á samanbrjótanlega bedda, eins og notaðir eru sem rúm fyrir hælisleitendur og úr hátölurum heyrast síðan fjölmargar ólíkar frásagnir.

Áhorfandanum býðst að leggjast niður og hlusta. Frásagnirnar hafa verið settar saman af kostgæfni með það í huga til að veita innsýn í líf manneskjunnar sem þær lýsa, og til að gefa áhorfendanum færi á að tengjast „sögu flóttamanns“ á nýstárlegan  hátt. Koddahjal var sýnt á Listahátíð í Reykjavík árið 2018. Verkið hefur verið lagað að Borgarbókasafninu Grófinni og samfara því verður haldin vinnustofa, en hún er hugsuð er til að kveikja umræður um efnið, sem sannarlega á enn erindi við samtímann.

Sonja Kovačević er austurískur leikhúsframleiðandi sem búsett er á Íslandi. Inn í verk  hennar fléttast áhugi á að skoða mikilvæg umræðuefni í samtímanum og á að skapa leikhús sem brúar bilið milli kenninganna og framsetningarinnar. Upp úr þessari blöndu verður oft til vinna með jaðarsettum hópum í samfélaginu.

Sonja mun einnig leiða vinnustofu sem haldin verður um menningarnæmi. Vinnustofan verður haldin á ensku og íslensku og öllum er velkomið að taka þátt!

Flokkur
UppfærtFöstudagur, 2. júlí, 2021 12:18
Materials