Íslensku bókmenntaverðlaunin veitt ásamt Blóðdropanum 2024

Við óskum handhöfum Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Blóðdropans, íslensku glæpasagnaverðlaunanna 2024 hjartanlega til hamingju. Verðlaunin voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum og í beinni útsendingu á RÚV 29. janúar.

Skáldverk:

Móðurást: Draumþing
Höfundur: Kristín Ómarsdóttir
Útgefandi: Mál og menning

Í um­sögn dóm­nefnd­ar seg­ir m.a.: „Framsetningin er brotakennd og ljóðræn og sýnir nýstárlega nálgun við ritun sögulegrar skáldsögu. Höfundi tekst listilega að skapa sögusvið sem er í senn framandi og kunnuglegt, einangrað og opið og veita innsýn inn í brothætt sálarlíf unglingsstúlku sem stendur á þröskuldi fullorðinsára og nýrra kennda, bundin af öllum þeim væntingum og takmörkunum sem samfélag hennar býr henni.“

Barnabók:

Tjörnin
Höfundur: Rán Flygenring
Útgefandi: Angústúra

Í um­sögn dóm­nefnd­ar seg­ir m.a.: „Bókin hentar börnum á öllum aldri jafnt sem fullorðnum og er endalaus uppspretta samtala og nýrra uppgötvana, alveg eins og sjálf tjörnin [sem bókin fjallar um]. Komið er inn á margvísleg viðfangsefni svo sem vináttu, eignarrétt, stjórn, samvinnu og jafnvel auðlindanýtingu, en allt undir formerkjum ævintýrisins og leiksins.“

Fræðirit:

Börn í Reykjavík
Höfundur: Guðjón Friðriksson
Útgefandi: Mál og menning

Í um­sögn dóm­nefnd­ar seg­ir m.a.: „Yfirgripsmikið og fróðlegt verk um sögu barna allt frá þéttbýlismyndun til dagsins í dag. Stíllinn er leikandi léttur og skrifað er af nærfærni og næmni um málefni barna og fjölskyldna, aðbúnað þeirra og umhverfi og textinn dýpkaður með persónulegum sögum.“

Glæpasaga (Blóðdropinn):

Dauðinn einn var vitni
Höfundur: Stefán Máni
Útgefandi: Sögur útgáfa

Í um­sögn dóm­nefnd­ar seg­ir m.a.: „Atburðarásin er hröð og spennandi og nær niðurtalningin sem sagan hverfist um sterkum tökum á lesandanum. Um leið heldur höfundur áfram að þróa litríka persónu og innri togstreitu hins breyska lögreglumanns Harðar Grímssonar á sannfærandi hátt. “

Lokadómnefnd skipuðu þau Björn Teitsson, Kristín Ásta Ólafsdóttir, Unnar Geir Unnarsson og Viðar Eggertsson ásamt Krist­ínu Ingu Viðars­dótt­ur, for­seta­skipuðum for­manni nefnd­ar­inn­ar.

Á Miðstöð íslenskra bókmennta má lesa ítarlegri umsagnir um verðlaunabækur ársins 2023.

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 30. janúar, 2025 15:36
Materials