Bókaðu stund fyrir bók

Bókaðu stund fyrir bók

Þjóðarátak í lestrarhvatningu á vegum Miðstöðvar íslenskra bókmennta

 

 

Miðstöð íslenskra bókmennta blæs til stórsóknar í lestrarhvatningu fullorðinna undir yfirskriftinni "Bókaðu stund fyrir bók".

Að þessu tilefni fer fram í dag 26. febrúar lifandi gjörningur í glugga verslunarinnar Under Armour á 1. hæð í Kringlunni þar sem "Lesandinn" Ragnar Ísleifur Bragason mun sitja og lesa í þrjár og hálfa klukkustund sem kyrrlátt mótvægi við ys og þys hversdagsins.

Markmið lestrarhvatningarinnar er að fá fólk til að gefa sér tíma til lesturs og gera bóklestur að raunhæfum hluta af daglegu lífi. Áherslan er á jákvæða hvatningu og einfaldar og aðgengilegar leiðir til að auka lestur.

Á vefnum bokastund.is má finna skemmtilegar hugmyndir að því hvernig megi bæta bóklestri inn í daglegt líf. Þar er auk þess fjallað um ráð til að stofna bókaklúbb og hvernig vinnustaðir geti lagt sitt að mörkum með t.d. lestraráskorunum, bókagjöfum, bókaklúbbum eða sameiginlegum lestrarstundum.

Borgarbókasafnið fagnar mjög þessu frábæra framtaki Miðstöðvar íslenskra bókmennta og minnum við þá sem eiga leið um Kringluna í dag (sem og aðra daga) að það er opið á Borgarbókasafninu í Kringlunni alla virka daga frá kl. 10.00 til 18.30 og um helgar frá 13.00 til 17.00 auk þess sem bókasafnið býður upp á umframopnun+.

Flokkur
UppfærtFimmtudagur, 26. febrúar, 2026 12:18