Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur 2024 afhent
Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur voru stofnuð árið 2018 til heiðurs Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi og fyrst veitt í apríl 2019. Reykjavíkurborg veitir verðlaunin árlega fyrir óprentað handrit að barna- eða ungmennabók og er þeim ætlað að styðja við nýsköpun í greininni.
Verðlaunahafi ársins 2024
Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur árið 2024 voru veitt í Höfða þann 12. september.
Verðlaunahafinn þetta árið er Ævar Þór Benediktsson fyrir handritið að skáldsögunni Skólastjórinn sem kemur út á næsta ári, en Einar Þorsteinsson, borgarstjóri og Irsa Sigurðardóttir, rithöfundur afhentu verðlaunin.
Við óskum Ævari Þór hjartanlega til hamingju með heiðurinn og hlökkum til að lesa bókina!
Materials