Gagnlegt efni til að æfa sig
Á milli samverustundanna okkar á bókasafninu hvetjum við þig til að skoða gagnlegt og ókeypis efni á netinu! Ef þú veist um fleiri vefsíður sem gætu hjálpað, þá endilega sendu okkur línu! Því meiri upplýsingar því betra!
Allir kennarar sem kenna íslensku nota þessa vefsíðu! Þú stimplar orðið inn í leitarreitinn og sérð þá hvernig það beygist og er stafsett í öllum föllum: https://bin.arnastofnun.is/
Sigurður, annar tveggja leiðbeinenda okkar, stofnaði þessa vefsíðu, þar er hægt að finna mjög skýrar greinar um íslenska tungumálið: https://www.icelandicmadeeasier.com/
Hér getur þú fundið mikið af hjálplegu hljóð- og námsefni (í pdf formi) til að hlaða ókeypis niður. Efninu er skipt í „bækur“ sem heita „bók 1,2,3…“ og í hverri „bók“ er hægt að finna kafla með ítarlegra efni: http://tungumalatorg.is/ifa/
Þessi vefsíða býður upp á ókeypis námskeið á netinu en það þarf að skrá sig: https://icelandiconline.com/
Ef þú notar Facebook getur þú tekið þátt í hópnum Practice and Learn Icelandic og fengið mikið af gagnlegum ábendingum þar. Þar er að finna lista með góðu hjálparefni:
https://www.facebook.com/groups/PracticeLearnIcelandic/files
Nánari upplýsingar veitir:
Hildur Björgvinsdóttir, verkefnastjóri
hildur.bjorgvinsdottir@reykjavik.is