BORGARBÓKASAFNIÐ

Verið velkomin á notalegar útisögustundir þar sem við kveikjum lítinn varðeld og njótum útiverunnar saman.
Við yljum okkur með heitu kakói á meðan rithöfundur les upp fyrir okkur.
Sögustundir við varðeld er viðburðaröð þar sem leitast er við að skapa eftirminnilega söguupplifun í takt við veður og vinda.
Hittumst úti fyrir framan neðri inngang Gerðubergs og klæðum okkur eftir veðri.
Hægt er að fylgast með í viðburðadagatalinu hér á heimasíðunni eða á Facebook síðu Borgarbókasafnsins.
Viðburðaröðin hlaut styrk frá Bókasafnasjóði.
Nánari upplýsingar veitir:
Svanhildur Halla Haraldsdóttir, sérfræðingur
svanhildur.halla.haraldsdottir@reykjavik.is | 411-6170