Smátextar | Þriðji ísbjörninn

Þriðji ísbjörninn

Þegar þriðji ísbjörninn gekk á land á Skaga nennti fólkið ekki lengur neinu veseni. Það gróf holu, löggan skaut hann ofan í holuna, mokaði yfir og málið var dautt.

Frænka mín sagði mér þetta. Fólkið sem sagði henni það er bæði vandað og áreiðanlegt.

Höfundur: Rannveig Jónsdóttir

Næsti smátexti: Hversdagsleikinn