Smátextar | Hefði þurft að
Hefði þurft að
Ég hefði þurft að
þrífa baðherbergið
skúra gólfin
ryksuga ganginn
skipta á rúmunum.
En ég gerði ekkert
ekki nokkurn skapaðan hlut.
Ég hefði þurft að
þrífa gluggana
þurrka af
raka laufin í garðinum
þvo þvott.
En ég gerði ekkert
ekki nokkurn skapaðan hlut
nema liggja í hægindastólnum
og lesa
skáldsögu um ástina
eftir Paulo Coelho
Höfundur: Þel