BORGARBÓKASAFNIÐ

Skynsegin rithöfundarýmið

ég er skynsegin

Skynsegin rithöfundarýmið í Reykjavík eru mánaðarlegir hittingar, bæði á staðnum og á netinu, þar sem skynsegin rithöfundar geta komið saman í vinalegu rými, skrifað og verið þeir sjálfir.

Við hittumst einu sinni í mánuði, yfirleitt annan laugardaginn í hverjum mánuðinum, í litlum notalegum krók á Borgarbókasafninu Grófinni (miðbæ).

Það eru aðskilin rými fyrir þau sem vilja spjalla og þau sem vilja skrifa í þögn: samskipti eru algjörlega valfrjáls.

Við deilum verkum, drögum að verkum og hugmyndum um hvernig eigi að birta verk skynsegin skapandi einstaklinga og gera heiminn betri fyrir okkur. Stimm og allt sem er hluti af því hver þú ert, er velkomið hér. Rýmið er fyrir skynsegin rithöfunda sem vilja stað til að skrifa í friði, án þess að þurfa að fela sig og ,setja upp grímu,.

Allir hittingar eru auglýstir í Facebook-hópnum: https://www.facebook.com/groups/2177293863091182

Þessi netspjallhópur er notaður til að ræða okkar skynsegin skrifreynslu, hvernig við getum gert skrifrýmið betra, hugmyndir að viðburðum, önnur netrými, mögulegt samstarf og fleira. Hópurinn og öll rýmin okkar eru örugg rými þar sem meðlimir geta vænst þess að geta verið til, án nokkurs konar kúgunar og öllum er velkomið að stinga upp á frekari grunnreglum sem gætu gert rýmin öruggari fyrir þau.

Endilega látið orðið berast til annarra skynsegin rithöfunda og takið þátt í samtalinu á þann hátt sem ykkur hentar.

 

Nánari upplýsingar veita:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjóri – aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is

Kathy D'Arcy
Stofnandi og umsjónaraðili Skynsegin höfundarýmis
kathy@hi.is