Saumahornið Árbæ

Í Saumahorninu er hægt að sauma nánast hvað sem er, gera við og taka upp snið. Þar eru tvær venjulegar saumavélar og ein overlock-vél sem gestir geta notað hvenær sem er á opnunartíma safnsins, eða bókað fyrirfram.
Aðstaðan er einnig tilvalin til að vera með smiðjur eða fræðslu tengda saumaskap.
Hér má sjá myndband úr smiðjunnu Sögubútar sem haldin var haustið 2025.
Þarftu aðstoð?
Gengið er út frá því að þau sem nýta sér aðstöðuna séu að mestu leiti sjálfbjarga en reglulega er boðið upp á aðstoðartíma þar sem kennt er á vélarnar og veitt aðstoð við saumaskapinn. Nauðsynlegt er að skrá sig í aðstoðina fyrirfram. Aðstoðartímarnir eru auglýstir á heimasíðu en þeir liggja niðri í júní til ágúst.
Á Borgarbókasafninu er að finna fjölbreyttan bókakost og tímarit um saumaskap og hannyrðir.