Samvera (Common Ground)

Samvera eru vikulegir viðburðir sem sameina íslenskunemendur og þau sem eru íslenskumælandi. Saman kynnumst við yfir kaffibolla og spjöllum um íslenska náttúru og samfélag, á meðan við æfum okkur í tungumálinu, í öruggu og vinalegu umhverfi.

Það verða þrjár mismunandi tegundir viðburða í boði:

____ 

 

Í náttúrunni - Gönguferðir í náttúrunni

Alla laugardaga 18. apríl - 30. maí og 5. september - 26. September

kl. 11.30 til 13.30

Gerðuberg

Við munum kanna audveldar gönguleiðir í kringum Gerðuberg, læra orðaforða sem tengist náttúrunni og spjalla saman í umhverfi sem er vinalegt og öruggt, á meðan við njótum útiverunnar.

Öll velkomin sem hafa áhuga á útivist og langar að kynnast nýju fólki, þvert á tungumál. Við hittumst  á bókasafninu í Gerðubergi fáum okkur kaffi og spjöllum smá  áður en við  förum í léttan göngutúr í nágrenninu og í Elliðaárdalnum.

Þegar veðrið er mjög slæmt munum við vera á bókasafninu og spila borðspil. Gönguferðirnar verða leiddar af þeim Hildi Loftsdóttur og Margréti Olsen sem báðar hafa mikla reynslu af því að kenna íslensku sem annað mál.

Sjá viðburðaröð

Viðburður á Facebook

____

Hvað er að frétta? – Lesum fréttirnar saman

Alla laugardaga frá 3. október - 19. desember

kl. 11.30 til 13.30

Gerðuberg

Við fáum okkur te/kaffi og lesum saman íslenskar fréttir.  Að lesa fréttir er góð leið til að læra flóknari orðaforða, ræða um hvað er að gerast á Íslandi og læra um mikilvæg málefni sem gætu haft áhrif okkur. Við munum lesa/skoða fréttir á auðskiljanlegri íslensku. Þetta á að vera öruggt rými fyrir öll og við munum forðast fréttir sem eru of sundrandi eða átakanlegar. Einnig verður í boði að spila borðspil.

Viðburðirnir verða leiddir af þeim Hildi Loftsdóttur og Margréti Olsen sem báðar hafa mikla reynslu af því að kenna íslensku sem annað mál.

____

Samljóða – Ljóðasmiðjur

alla miðvikudaga frá 16. september - 2. desember, kl. 16:30-18:00

Grófin

Á þessum viðburðum munum við leika okkur með íslenska tungu og semja ljóð, bæði þau sem eru að læra málið og þau sem tala það reiprennandi.   Smiðjurnar verða leiddar af bæði íslenskum rithöfundum og rithöfundum sem hafa íslensku sem annað tungumál. Nánari upplýsingar verða birtar á miðlum Borgarbókasafnsins  síðar á árinu.

____

Tengiliður 

Fanny Sissoko, Verkefnastjóri Inngildingar og Fræðslu

Fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is

Samvera er styrkt af Þróunarsjóði innflytjenda.