BORGARBÓKASAFNIÐ

Nú er komið að hinni árlegu Jólalagakeppni Borgarbókasafnsins!
Borgarbókasafnið efndi í fyrsta sinn til jólalagakeppni árið 2022. Þar sem hún heppnaðist vel hefur hún síðan verið árlegur viðburður þar sem öll geta tekið þátt.
Óskað er eftir frumsömdum, áður óútgefnum lögum á stafrænu formi. Lögin þurfa að vera á íslensku og geta verið með eða án texta. Æskileg lagalengd er um þrjár mínútur.
Lokafrestur til innsendinga er þriðjudaginn 1. desember kl. 23:59.
Þátttakendur eru beðnir um að senda lögin í keppnina á netfangið:
jolalag@borgarbokasafn.is
Úrslit verða tilkynnt mánudaginn 7. desember
Dómnefndina skipa Bára Bjarnadóttir og Alexander Sigurðarson, sérfræðingar hjá Borgarbókasafninu, og sigurvegari keppninnar 2025, tónlistarkonan María Agnesardóttir, sem jafnframt er formaður dómnefndar.
2025 | Jól, ó þessi jól eftir Maríu Agnesardóttur og Jóhann Víði Erlendsson
2024 | Ég er jólakötturinn eftir Inga Hrafn og Gumma Grétar
2023 | Það snjóar á alla eftir Jens Einarsson
2022 | Christmas is my favorite time of the year eftir Ximena Días
Nánari upplýsingar: