Reddingakaffi | Borgarbókasafnið Grófinni
Reddingakaffi er mánaðarlegur viðburður þar sem hægt er að fá aðstoð frá sjálfboðaliðum og öðrum viðstöddum við að gera við allt milli himins og jarðar.
Við hvetjum þig til að kíkja við, gera við hluti og kynnast nýju fólki!
Komdu með hluti sem þer þykir vænt um en eru hættir að virka. Föt, raftæki, brotinn bolli, sprungin vindsæng – við reynum eftir bestu getu að laga og bæta saman.
Hjálpumst við að vinna gegn sóun og halda hlutum lengur í hringrásinni.
♻️ GERUM VIÐ HLUTI SAMAN! ♻️
Reddingakaffi á Borgarbókasafninu Grófinni:
-
DAGSKRÁ 2026:
Sunnudagur, 1. mars - í samstarfi við Framtíðarfestivalið
Sunnudagur, 12. apríl
Sunnudagur, 3. maí
Sunnudagur, 7. júní
Sunnudagur, 6. september
Sunnudagur, 4. október
Sunnudagur, 1. nóvember
Sunnudagur, 6. desember
Verið öll hjartanlega velkomin!
Verkefnið er á vegum Hringrásarseturs Íslands og Munasafns RVK Tool Library.
Nánari upplýsingar veita:
Anna C W de Matos, formaður Hringrásarseturs Íslands
hae@hringrasarseturislands.org



