Púslhittingar

Langar þig að slást í hópinn?
Öll eru hjartanlega velkomin á púslhittinga á vegum Hins íslenska púslsambands, sem haldnir eru vikulega, á fimmtudagskvöldum frá kl. 19 - 20 á Borgarbókasafninu í Úlfarsárdal, allt árið um kring nema í júlí.
Að púsla er frábær dægradvöl og hugarleikfimi og hér á landi hefur skapast ört vaxandi samfélag púslara. Hið íslenska púslsamband var sett á laggirnar í upphafi árs 2025 og er ætlað að halda utan um hópinn, skapa tækifæri til að hittast, púsla, skiptast á púslum og standa á keppnum í hraðpúsli.

Tilvalið er að taka með sér púsl að heiman á púslhittingana og eiga notalega stund í skemmtilegum hópi. Byrjendur geta fengið púsl að láni á staðnum. Það er jafnframt velkomið að taka með sér púsl fyrir börnin, séu þau með í för.
Þarna gefst tilvalið tækifæri fyrir áhugasöm til að skiptast á púslum við önnur í hópnum.
Notaleg stemning ríkir á safninu og kaffi og te í boði fyrir þau sem vilja.
Og svo er um að gera að skella sér í sund í Dalslaug fyrir eða eftir púslhittingana, en laugin er í sama húsnæði og bókasafnið.
Endilega lítið við!
Nánari upplýsingar veitir:
Hið íslenska púslsamband
puslsamband@gmail.com
Smelltu hér ef þig langar að slást í hópinn á Facebook
Tinna Birna Björnsdóttir | Sérfræðingur - Viðburðir
tinna.birna.bjornsdottir@reykjavik.is