Pokar með stæl

Borgarbókasafnið Árbæ
Sunnudagana 3. og 10. maí 2026, kl. 13:00 - 15:00
Allar upplýsingar um make-a-thek verkefnið.
Gefðu taupokanum nýtt líf með Textíl Barnum!
Ertu með þreyttan eða hálfleiðinlegan fjölnotapoka sem safnar ryki í skápnum? Eða ertu með poka með merki sem þú vilt fela? Komdu með hann á vinnustofu Textíl Barsins og breyttu honum í algjört meistaraverk.
Í þessari smiðju einbeitum við okkur að því að skreyta, bæta og breyta tilbúnum pokum. Við notum skapandi aðferðir til að gera gamla poka eins og nýja eða jafnvel betri en nýja.
Hvað geturðu gert í smiðjunni?
- Við mætum með hugmyndirnar og tækin, þú mætir með pokann.
- Hægt verður að sauma á bætur, nota fallega efnisafganga til að sauma eða líma skemmtileg munstur yfir göt eða gömul lógó. Settu þinn svip á pokann með alls kyns spennandi textíl. Bættu við perlum, tölum, kögri eða einföldum útsaumi fyrir aukinn karakter.
Af hverju að mæta?
- Engin saumakunnátta nauðsynleg, þetta snýst um sköpun, ekki flókna tækni.
- Persónulegur stíll enginn annar mun eiga eins poka og þú.
- Hringrásarhagkerfið í verki, við lengjum líftíma þess sem við eigum nú þegar.
Hvað á að koma með:
- Taktu með þér einn eða fleiri taupoka (gamla búðarpoka, auglýsingapoka eða hvað sem er). Ef þú átt eitthvað skemmtilegt skraut til að setja á pokann þá er upplagt að kippa því líka með.
- Á staðnum verður töluvert af skrauti s.s. efnisafgangar, tvinnar, tölur og verkfæri.
Borgarbókasafnið er þátttakandi í alþjóðlegu verkefni til þriggja ára sem nefnist Make-a-thek. Markmiðið með þessu verkefni er að skapa vettvang fyrir skapandi og framsækna neytendur (prosumer) þar sem þekkingu er deilt og við lærum í sameiningu nýjar aðferðir t.d. við að gera við textíl, og kynnumst allskyns handverki og aðferðum. Þetta er ferðalag og áfangastaðurinn mótast með þátttöku sem flestra. Verkefnið er styrkt af Evrópusambandinu. Sjá https://www.makeathek.eu/
Nánari upplýsingar veita:
Katrín Guðmundsdóttir, Borgarbókasafninu Árbæ
katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Hrafnhildur Gísladóttir og Hildigunnur Sigurðardóttir
Textíl Barinn | textilbarinn@gmail.com