Verkefnið

Hvernig geta menningarstofnanir þróað rými fyrir ólíkar raddir og endurspeglað breidd samfélagsins?

Opin rými allra er verkefni, þar sem listrænni nálgun í síbreytilegu menningarlandslagi er beitt til að:

  • Kanna leiðir fyrir opna og gagnrýna menningarsamræðu.
  • Þróa skapandi nálgun til að ræða ólíkar frásagnir, valdastrúktúr, forréttindi og menningarstofnanir.
  • Auka nýsköpun innan menningargeirans og opna verkferla á sviði stefnumótunar.

 

Í fyrsta fasa verkefnisins eru tilraunakenndir og þátttökumiðaðir ferlar mótaðir með listafólki og rithöfundasamfélagi Ós Pressunnar.