Anime klúbbarnir
Hefur þú brennandi áhuga á Anime?
Langar þig að teikna, spila, spjalla, föndra, horfa á þætti, glugga í bækur eða bara "tjilla" með krökkunum? Þá er Anime klúbburinn eitthvað fyrir þig!
Anime klúbburinn hefur verið starfræktur frá því í byrjun árs 2021 og fjölmargir krakkar meðlimir. Það er engin skyldumæting né þátttökugjald þannig að það er bara að mæta.
Félagar í Íslenska myndasögusamfélaginu sjá um að skipuleggja smiðjur og alls kyns afþreyingu s.s. bíó ferðir og hrekkjavökuböll svo fátt eitt sé nefnt.
Klúbbur fyrir 9-12 ára
Borgarbókasafnið Grófinni
Mið. 21. september kl. 15:00-16:30
Mið. 19. október kl. 15:00-16:30
Mið. 16. nóvember kl. 15:00-16:30
Opnað verður fyrir skráningu í klúbbinn 25. ágúst.Klúbbur fyrir 9-12 ára
Borgarbókasafnið Spönginni
Mið. 7. september kl. 15:00-16:30
Mið. 5. október kl. 15:00-16:30
Mið. 2. nóvember kl. 15:00-16:30
Opnað verður fyrir skráningu í klúbbinn 25. ágúst.Opinn klúbbur fyrir 13-16 ára
Borgarbókasafnið Gerðubergi (í OKinu)
Alla miðvikudaga kl. 16:30 - 18:00Athugið breyttan tíma í sumar. Klúbburinn hittist Gerðubergi:
15. júní kl. 16:00-17:30
29. júní kl. 16:00-17:30
13. júlí kl. 16:00-17:30
27. júlí kl. 16:00-17:30
Frí í ágúst til 24. ágústOpinn klúbbur fyrir 13-16 ára
Borgarbókasafnið Grófinni (á 5. hæð)
Alla fimmtudaga kl. 16.30 - 18.00Athugið breyttan tíma í sumar. Klúbburinn hittist Grófinni:
16. júní kl. 16.30-18.00
30. júní kl. 16.30-18.00
14. júlí kl. 16.30-18.99
28. júlí kl. 16.30-18.00
Frí í ágúst til 25. ágúst.Ókeypis aðgangur - öll velkomin!
Nánari upplýsingar veitir:Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri viðburða
holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is | s. 868 1851
Fylgist með dagskrá vikunnar á Instagram reikningi OKsins.
Animeklúbburinn er í samstarfi við Íslenska Myndasögusamfélagið.
Í Borgarbókasafninu Gerðubergi, Grófinni og Spönginni er veglegt safn af Anime bókum og unglingar undir 18 ára aldri þurfa ekki að greiða fyrir bókasafnskort.
Verkefnið hefur hlotið styrki frá Barnamenningarsjóði, Hverfasjóði Reykjavíkurborgar og Landsvirkjun.
OKið í Gerðubergi
Í OKinu er verkstæði þar sem hægt er að gera alls konar spennandi hluti, s.s. að búa til barmmerki, prenta á boli og prenta hluti í þrívídd svo fátt eitt sé nefnt.
Fimmta hæðin í Grófinni
Á fimmtu hæðinni er veglegt safn af Anime bókum en einnig er þar að finna tónlistarverkstæði sem er tilvalið fyrir þau sem hafa áhuga á tónlist og myndvinnslu. Verkstæðið er fullbúið iMac tölvum og midi hljómborðum, með fjöldann allan af tónlistarforritum svo það er bæði hægt að semja tónlist og taka upp. Einnig forrit fyrir þá sem hafa áhuga á margmiðlun, er aðgangur að Adobe Creative Suite og Final Cut Pro fyrir margskonar myndvinnslu og hönnun.
Sjá nánar um Verkstæðið