BORGARBÓKASAFNIÐ

Nýstárleg íslensk orðabók

Þagnarskuld

Öll orð voru einhvern tíma búin til. Þú getur bætt við hugmynd að nýju orði í forminu hér fyrir neðan!

Orð vikunnar er ÞAGNARSKULD: Að skulda þögn vegna þess að maður hefur talað of mikið. Orðið er sérstaklega viðeigandi í aðstæðum þar sem við höfum tekið yfir samræður án þess að búa að reynslu, þekkingu eða innsýn um málefnið. Þá er gott að huga að þagnarskuldinni, þegja og leyfa öðrum að tjá sig.  
Dæmi: Jæja Bjarni, þú leggur ekkert inn, tekur bara út og þagnarskuldin stækkar og stækkar. 

Orðabókin er kaflaskipt eftir því hvernig orðin fundu sér leið í bókina. Þar má nefna orðasmiðjur á Borgarbókasafninu, vinnustofur í grunnskóla,  framlög einstaklinga á upplestrarviðburðum og innsendar tillögur í gegnum netið. Kaflarnir eru sex talsins og í byrjun hvers þeirra er stutt lýsing á áherslum sem gefa vísbendingu um jarðveginn sem orðin spruttu úr. Flest framlögin komu inn sem handskrifaðar tillögur og mynd af þeim má finna í bókinni. Skilgreiningar á nýjum orðum voru ekki allar á íslensku og sum orð komu oft fyrir. Til einföldunar tóku ritstjórar tillögurnar saman, sameinuðu þær sem komu oftar en einu sinni fyrir, þýddu skilgreiningar yfir á íslensku, aðlöguðu að íslenskri málfræði eða einfölduðu til að gera textann aðgengilegri.

Hvaða orð vantar í íslenskuna? Kannski þekkir þú orð úr öðru tungumáli sem þér finnst vanta góða þýðingu á. Eða hugsanlega þekkir þú tilfinningu eða kringumstæður sem þér finnst mikilvægt að geta talað um, en vantar glænýtt orð til að lýsa. Ef þetta vekur áhuga þinn viljum við hvetja þig til að vera með og bæta þínu orði í nýstárlega íslenska orðabók sem við ætlum að skapa í sameiningu. Þannig hjálpumst við að við að móta framtíð íslenskunnar. Í samfélagi sem tekur stöðugum breytingum þarf tungumálið að þróast í takt svo við getum miðlað og tjáð okkur um nýjan raunveruleika. Hafðu samband ef þú þarfnast aðstoðar og ekki vera hrædd við að sletta eða blanda ólíkum tungumálum í þinni tillögu ef það hjálpar þér að miðla hugmynd þinni. 

Frekari upplýsingar veitir:
Martyna Karolina Daniel
Verkefnastjórn | Aðgengi og samfélagsleg þátttaka
martyna.karolina.daniel@reykjavik.is