BORGARBÓKASAFNIÐ

Hér má sjá ýmsar breytingar í útliti og framsetningu á efni, en tilgangur síðunnar breytist ekki, það er að gefa rétta og skýra mynd af öllu því sem finna má á bókasöfnunum okkar, og auðvelda notendum eftir fremsta megni að nýta sér þjónustu bókasafnsins.
Umfang síðunnar hefur minnkað nokkuð.
„Mínar síður“ eru ekki hluti af heimasíðunni. Hluti af þeirri notendaþjónustu verður áfram aðgengileg á vefnum borgarbokasafn.leitir.is. Þar er hægt að
Leit í bókasafnskerfinu er sömuleiðis til staðar á borgarbokasafn.leitir.is, en ný síða Borgarbókasafnsins býður ekki upp á leit eftir bókum eða öðru efni eins og áður var.
Loks bjóðum við ekki lengur upp á skráningu eða endurnýjun bókasafnskorta, né greiðslu sekta, á netinu. Hvorki hér á nýrri heimasíðu Borgarbókasafnsins né á borgarbokasafn.leitir.is, að minnsta kosti ekki að svo stöddu.
Starfsfólk bókasafnanna sinnir allri þessari þjónustu fljótt og vel, eftir sem áður, þegar komið er á bókasafnið.