BORGARBÓKASAFNIÐ

Nemendasýning 10. bekkjar Víkurskóla

Nemendasýning Víkurskóla

Borgarbókasafnið Spönginni
11. - 23. maí 2026

„Af hverju er svefn mikilvægur? Hvaða áhrif hefur símanotkun á heilann? Af hverju fá sumir hjartaáfall?“

Komið á sýninguna okkar til að finna svarið við þessum og mörgum öðrum spurningum!

Nemendur úr 10. bekk Víkurskóla hafa unnið að vísindagreinum í náttúrufræði eftir áhugasviði í tengslum við umræðu um mannslíkamann. Greinarnar fræða um áhugaverð og spennandi viðfangsefni sem snerta heilsu okkar allra. Á sýningunni verða tímarit nemenda aðgengileg til lesturs ásamt sýnishornum og fleiri vísindagreinum.

*Athugið að sýningin er á 2. hæð safnsins.

Öll velkomin!

 

Nánari upplýsingar veitir:
Halldór Óli Gunnarsson
halldor.oli.gunnarsson@reykjavik.is

Veronica Piazza
veronica.piazza@reykjavik.is